![]() |
![]() |
ÍBÚÐ VIÐ GÖTU SÓLARINNAR 6 VIÐ KJARNASKÓG
Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands sjá um rekstur þessa húsnæðis.
Íbúðin er ætluð fyrir einstaklinga ásamt aðstandendum þeirra sem þurfa veikinda sinna vegna að dvelja fjarri heimili sínu í ákveðinn tíma og þurfa sérhæfða einkennameðferð eða lífslokameðferð. Með tilkomu húsnæðisins er fjölskyldum (mökum, börnum) og öðrum aðstandendum gert kleift að dvelja í hentugu húsnæði ef þörf er á. Þeir einstaklingar sem eru í lífslokameðferð sitja (ávallt) fyrir leigu á þessari íbúð.
HÚSNÆÐIÐ, UMGENGNI OG REGLUR
Húsnæðið er 100m2 að stærð, þrjú herbergi eru í húsinu sem hefur 5 rúmstæði og tvö baðherbergi með sturtu. Í eldhúsi er ísskápur með frysti, eldavél, bakarofn, örbylgjuofn og uppþvottavél ásamt hefðbundnum eldhúsbúnaði. Borðbúnaður er fyrir 12 manns. Þvottavél og þurrkari eru í geymslu sem er áföst húsinu.
Sjónvarp og netaðgangur er í húsinu.
Þvottavél og þurrkari eru í útigeymslu.
Á verönd eru útihúsgögn og heitur pottur.
Reykingar eru bannaðar í húsinu og gæludýr ekki leyfð.
Hverjir eiga rétt á dvöl í húsinu, eftirtaldir forgangshópar eru í gildi varðandi notkun
1. Einstaklingar í lífslokameðferð sem getur ekki dvalið í eigin húsnæði og þarf umönnun heimahlynningar
2. Einstaklingar í krabbameinslyfjameðferð eða einkennameðferð.
3. Aðrir sjúklingahópar og/ -eða aðstandendur inniliggjandi sjúklinga.
4. Aðrir.
Leigutími: Íbúðin er leigð að hámarki viku í senn, en hægt er að leigja íbúðina lengur ef einstaklingur í forgangshópi er ekki á biðlista.
Leigukostnaður: Verð fyrir hvern sólarhring er 4.500 krónur, vikuleiga 25.000 krónur.
Afhending lykla: Lyklabox er við húsið og fær viðkomandi upplýsingar um númer við upphaf leigu.
Þegar íbúð er pöntuð skal fylla út eyðublað á Ytri síðu SAK (www.sak.is) - heimahlynning leiguíbúð þar má finna hlekk Umsókn um leigu á íbúð - Gata sólarinnar 6
Nánari upplýsingar um íbúðina og bókanir í síma 830-8628 alla virka daga milli kl. 10:00-14:00. Utan þess tíma í síma 860-4666.
ALMENNAR REGLUR OG LEIÐBEININGAR VARÐANDI HÚSNÆÐIÐ
Dvalargestur og aðstandendur hans eru beðnir að ganga snyrtilega um húsnæðið meðan á dvöl stendur og skila íbúð snyrtilegri.
Mikilvægt er að láta vita í síma 8604666 ef eitthvað skemmist eða vantar í íbúðina við komu eða brottför.
VIÐ BROTTFÖR ER MIKILVÆGT AÐ SKILA HÚSINU Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM TEKIÐ ER VIÐ HENNI
- Tæma ísskáp og þrífa muna eftir frystihólfi
- Þrífa örbylgjuofn.
- Taka rúmföt af rúmum og setja í þvottakörfu á baðherbergi
- Uppþvottavél skal tæmd og leirtaui komið fyrir á sínum stað.
- Þurrkað skal af borði og eldhúsbekk.
- Gólf ryksugað.
Vinsamlega látið vita ÞEGAR ÍBÚÐ ER SKILAÐ í síma 860-4666
Muna að setja lykil í lyklabox og hengja aukalykil á fatasnaga í forstofu
Uppfært: fös 18.nóv 2022