Sjúkratryggingar Íslands hafa gert rammasamning um kaup á gistiþjónustu á Akureyri fyrir sjúkratryggða einstaklinga.
Tveir gististaðir hafa gerst aðilar að samningum.
Hótel Akureyri er 17 herbergja vel búið hótel þar sem rík áhersla er lögð á persónulega þjónustu. Herbergin eru með sér baðherbergi, sjónvarpi og þráðlausri nettengingu.
Hótel Akureyri - Hafnarstræti 67 - Sími 462 5600
Gistihúsið Hrafninn er með 7 herbergi, öll búin með sér baðherbergjum, heilsurúmum, sjónvarpi og þráðlausri nettengingu. Sameiginlegt eldhús er til afnota fyrir gesti.
Gistihúsið Hrafninn - Brekkugötu 4 - Sími 462 5600
Sjúkraíbúðir við Hlíð. Tvær raðhúsaíbúðir eru til útleigu fyrir sjúklinga og aðstandendur Sjúkrahússins á Akureyri. Í íbúðunum er eitt svefnherbergi með tvíbreiðu stillanlegu rúmi og í stofu er stækkanlegur svefnsófi. Sængur, koddar og lín eru fyrir 4 og einnig öll helstu eldhústæki og búnaður. Baðherbergi er rúmgott og aðgengi fyrir hjólastóla. Í stofu er borðstofuborð og 6 stólar, sjónvarp og nettenging. Þvottavél og þurrkari eru í íbúðunum.
Öldrunarheimili Akureyrar – Austurbyggð 21g og 21h, aðkoma að íbúðunum er frá Þórunnarstræti. – Sími 460 9100, opnunartími skrifstofu er virka daga frá kl. 8-15.
Framboð herbergja á gististöðunum er háð bókunarstöðu hverju sinni.
Rammasamningur um gistiþjónustu á Akureyri - gildir frá 1. október 2015
Eyðublöð og vottorð á vef Sjúkratrygginga Íslands
Frétt á vef Sjúkratrygginga Íslands um rammasamning dags. 9. október 2015
Uppfært: mán 30.sep 2019