Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 kveða skýrt á um þagnarskylduna sbr. 12. og 13. gr.
„Starfsmaður í heilbrigðisþjónustu skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þagnarskyldan helst þó að sjúklingur andist og þó að starfsmaður láti af störfum. Mæli ríkar ástæður með því getur starfsmaður látið í té upplýsingar með hliðsjón af vilja hins látna og hagsmunum hlutaðeigandi. Sé starfsmaður í vafa getur hann borið málið undir landlækni".
Með undirskrift sinni á ráðningarsamning gangast starfsmenn undir þagnarskylduna.
Nemar sem koma til verkþjálfunar á sjúkrahúsið undirrita eyðublað um þagnarskyldu.
Undanþágur frá þagnarskyldu
„Þagnarskylda nær ekki til atvika sem starfsmanni í heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum,
t.d. ákvæðum barnaverndarlaga. Í þeim tilvikum ber starfsmanni skylda til að koma upplýsingum um atvikið á framfæri við þar til
bær yfirvöld.
Samþykki sjúklings eða forráðamanns leysir starfsmann undan þagnarskyldu.
Um vitnaskyldu starfsmanna í heilbrigðisþjónustu gilda ákvæði [laga um heilbrigðisstarfsmenn]".
Þagmælska og virðing
Mikilvægt er að bæði sjúklingar og aðstandendur haldi þeim upplýsingum sem þeir kunna að heyra og verða vitni að út af fyrir sig. Þetta á sérstaklega við um það sem lýtur að öðrum sjúklingum á deildinni.
Á meðan á stofugangi stendur er ekki ætlast til að gestir séu í heimsókn.
Uppfært: fim 9.jún 2016