Læknir skal rita dánarvottorð og
þarf það að liggja fyrir áður en kemur til útfarar.
Aðstandendur nálgast dánarvottorð á deild sjúklings eða hjá læknariturum. Afhendingarstaður þess er skráður í bæklinginn Þegar andlát ber að höndum.
Dánarvottorðið er afhent sýslumanni þar sem hinn látni átti lögheimili. Hjá sýslumanni er síðan útgefið staðfestingarvottorð sem prestur, eða annar sem annast útförina, fær í hendur fyrir hana.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sýslumanna um tilkynningu andláts og formsatriði í tengslum við útför.
Uppfært: þri 21.jún 2016