Deild mennta og vísinda sér um skipulag, umsjón og eftirlit með því sem lýtur að menntun og vísindum þvert á allar starfseiningar sjúkrahússins. Meðal verkefna er að annast starfsnám háskólanema og framhaldsskólanema í heilbrigðisgreinum auk þess að hafa umsjón með skipulagi kandídata og annarra námslækna. Einnig falla undir deildina alþjóðamál, verkefnastofa, og kynningarmál.
Undir eininguna heyra upplýsingafræðingur, kennslu- og þjálfunarstjóri, námsstjóri, verkefnastjóri hjúkrunar, aðstoðarmaður og kandídatar. Starfsmenn eininganna bera allir faglega ábyrgð og ábyrgð á daglegri starfsemi sem þeim tilheyrir.
Sjúkrahúsið á Akureyri annast starfsnám háskólanema í heilbrigðisvísindagreinum við Háskólann á Akureyri, auk þess sem það tekur þátt í starfsnámi annarra háskólanema og framhaldsskólanema í grunn- og framhaldsnámi á heilbrigðissviði í samvinnu við Landspítala, Háskóla Íslands og aðrar heilbrigðisstofnanir og skóla.
Töluvert er um að starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri stundi vísindarannsóknir eða séu með þátttöku í verkefnum á heilbrigðissviði, á innlendum sem og alþjóðlegum vettvangi. Starfsmenn sjúkrahússins, sem sinna kennslu og rannsóknum, starfa náið með þeim háskóladeildum er sjúkrahúsinu tengjast.
Heilbrigðisvísindasafn tilheyrir deildinni.
Forstöðumaður deildar mennta og vísinda er Laufey Hrólfsdóttir.
Uppfært: mán 3.maí 2021