Símanúmer / Tímapantanir
Símanúmer afgreiðslu myndgreiningadeildar er 463 0251
Afgreiðsla myndgreiningadeildar er opin frá kl 08:00 – 16:00 alla virka daga.
Bráðaþjónusta er veitt allan sólahringinn í samvinnu við bráðamóttöku.
Þegar beiðni berst frá lækni um rannsókn hringir starfsfólk myndgreiningadeildar í skjólstæðinga og býður tíma. Beiðni frá lækni þarf ávallt að liggja fyrir.
Ef tilvísandi læknir hefur ekki aðgang að RIS kerfinu þá er hægt að prenta út pappírsbeiðni og senda okkur í pósti.
Verið er að vinna að uppsetningu að rafrænum aðgangi fyrir tilvísandi lækna.
Skimun fyrir brjóstakrabbameini
Einkennalausar konur 40 til 74 ára geta pantað tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini.
Tímapantanir eru í síma 513-6700 hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana milli kl. 8:30 og 12:00 alla virka daga en brjóstamyndataka fer fram hjá okkur á SAk.
Krabbameinsleit brjósta utan skimunar er bókað á myndgreiningadeildinni í síma 463-0253.
![]() |
![]() |
Uppfært: fim 14.jan 2021