Fjármála- og rekstrarsvið hefur umsjón með fjármálum sjúkrahússins og annast reikningshald þess og gerir ársreikning. Sviðið heldur utan um fjárheimildir sjúkrahússins, sér um fjárstýringu og innheimtir kröfur. Gerð og eftirfylgni með fjárhagsáætlun er meðal verkefna sviðsins. Það annast söfnun, úrvinnslu og miðlun klínískra og fjárhagslegra upplýsinga. Útboð, samningagerð, innkaup og vörustýring eru meðal hlutverka sviðsins og öryggismál. Undir fjármála- og rekstrarsvið heyrir skrifstofa fjármála, upplýsingatæknideild, eldhús, ræstimiðstöð, rekstrardeild (húsumsjón, tæknideild, vörulager, saumastofa), öryggisstjóri og umhverfisráð. Fjármála- og rekstrarsvið starfar þvert á önnur svið, hefur við þau nána samvinnu og veitir þeim ráðgjöf.
Yfirmaður sviðsins er framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Næsti yfirmaður hans er forstjóri.
Framkvæmdastjóri sviðsins setur fram stjórnskipan og skipurit sviðsins í samráði við forstjóra og aðra framkvæmdastjóra.
Á fjármála- og rekstrarsviði eru 5 stjórnunareiningar.
Uppfært: mið 17.jan 2018