Rekstrardeild

Rekstrardeild er ein af stoðdeildum sjúkrahússins, sem samanstendur af húsumsjón, tækniumsjón, saumastofu og vörulager. Húsumsjón hefur eftirlit og

Rekstrardeild

Tækni- og innkaupadeildRekstrardeild er ein af stoðdeildum sjúkrahússins, sem samanstendur af húsumsjón, tækniumsjón, saumastofu og vörulager.

Húsumsjón hefur eftirlit og umsjón með rekstri húseigna og lóða en þær eru við Eyrarlandsveg, Kristnesspítali, Stekkur og íbúðir við Víðilund og Hjallalund, ásamt starfsmannahúsum á Kristnesi. Helstu verkefni húsumsjónar eru almennt viðhald ásamt meiriháttar lagfæringum og endurbótum.

Saumastofa sér um að sauma og viðhalda líni og starfsmannafatnaði sem notaður er á sjúkrahúsinu. 

Á tækniumsjón fer fram viðhald, eftirlit og kennsla varðandi lækningatæki og búnað. Tækniumsjón annast einnig eftirlit og viðhald með loftræstikerfi, rafkerfi, öryggis- og eldvarnakerfum sjúkrahússins.

Starfsmenn vörulagers hafa umsjón með innkaupum og afgreiðslu á rekstrarvörum fyrir sjúkrahúsið.

Forstöðumaður rekstrardeildar er Gunnar Líndal Sigurðsson.
Verkstjóri húsumsjónar er Hannes R. Reynisson.
Verkstjóri saumastofu er Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Verkstjóri tækniumsjónar er Einar S. Bjarnason.
Verkstjóri vörulagers er Elísabet Gestsdóttir.

 

 

Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112