Lífslokameðferð hefst þegar sjúklingur er deyjandi (dagar/vikur) og er þá áhersla meðferðar eingöngu að draga úr einkennum og vanlíðan og tryggja að sjúklingur geti dáið með reisn. Lífslokameðferð felur ekki í sér endurlífgun, gjörgæsluvistun eða önnur íþyngjandi inngrip.
Lífslokameðferð er hægt að veita í heimahúsi ef óskað er eftir því.
Uppfært: þri 3.nóv 2020