Móttaka stómaþega á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Móttaka stómaþega var opnuð haustið 2010. Tilgangur hennar er að leiðbeina stómaþegum sem gengist hafa undir stómaaðgerð á Sjúkrahúsinu á Akureyri varðandi húðvandamál og vöruval.
Í móttökunni starfa Sigfríður Héðinsdóttir og Kristrún Þ. Ríkharðsdóttir hjúkrunarfræðingar á handlækninga- og bæklunardeild sjúkrahússins á Akureyri, sem báðar hafa áratugalanga reynslu.
Móttakan er til húsa á almennri göngudeild á 1. hæð, gengið inn um inngang D. Hún er opin annan miðvikudag í mánuði frá kl. 15:00 - 16:00.
Tímapantanir eru í afgreiðslu almennrar göngudeildar í síma: 463 0330.
Uppfært: fös 25.jan 2013