Alþjóðleg gæðavottun

Sjúkrahúsið á Akureyri er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Vottunin var

Alþjóðleg gæðavottun – aukið öryggi og þjónusta

Alþjóðleg gæðavottunSjúkrahúsið á Akureyri er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Vottunin var upphaflega veitt 18. desember 2015 og endurnýjuð í lok árs 2018 til næstu þriggja ára. Vottunaraðilinn er alþjóðlega fyrirtækið DNV GL sem er eitt af stærstu fyrirtækjum á þessu sviði í heiminum. Jafnframt hlaut SAk vottun á allri sinni starfsemi samkvæmt ISO 9001:2015 staðlinum vorið 2019 og gildir sú vottun til 2022.

Vottunin er samkvæmt þeim kröfum sem ofangreindir staðlar gera til sjúkrahúsa. Bæði ISO og alþjóðlega gæðavottunin taka m.a. til gæðakerfis og gæðastjórnunar, áhættustýringar og áhættumats, skipulags, allrar klínískrar þjónustu, starfsaðstöðu, húsnæðis og réttinda sjúklinga.

Smellið á myndina til að stækka

Megin drifkrafturinn í þessari vegferð sjúkrahússins er aukið öryggi og þjónusta við sjúklinga og bætt starfsaðstaða. Vottunin og sú vinna sem henni tengist skilar markvissari vinnuferlum, auknu öryggi sjúklinga og starfsmanna og tryggir stöðugar umbætur sem munu leiða til skilvirkari þjónustu. Þá skerpir hún á hlutverkum hvers og eins sem m.a. hefur jákvæð áhrif á vinnuumhverfi og samskipti sem eru lykilþættir í starfsánægju.

Gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu hefur lengi verið til umræðu innan heilbrigðisstofnana og í samfélaginu. Sjúkrahúsið á Akureyri setti það sem markmið í framtíðarsýn sinni til 2017 sem samþykkt var í lok árs 2011 að starfsemi þess yrði alþjóðlega vottuð. Ötullega hefur verið unnið að þessu markmiði síðan og nánast allir starfsmenn komið að því verki með einum eða öðrum hætti undir styrkri stjórn gæðaráðs, gæðastjóra, gæðavarða og stjórnenda. SAk er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Norðurlöndunum til að hljóta vottun DNV GL.

Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112