Ánægjulegar niðurstöður úr þjónustukönnun

Ánægjulegar niðurstöður úr þjónustukönnun Á tímabilinu 23. september til 6. desember 2022 vann Gallup þjónustukönnun fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem

Ánægjulegar niðurstöður úr þjónustukönnun

Á tímabilinu 23. september til 6. desember 2022 vann Gallup þjónustukönnun fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem markmiðið var að mæla traust almennings til sjúkrahússins á starfssvæði þess ásamt því að mæla afstöðu þeirra sem hafa nýtt sér þjónustu sjúkrahússins. 

Um var að ræða netkönnun sem náði til tæplega 2300 manna úrtaks, 18 ára og eldri sem búsettir eru á svæðinu frá Austur-Húnavatnssýslu í vestri til Djúpavogs í austri (í póstnúmerum 540-766). Svarhlutfall var 60,8%.  Heilt yfir voru niðurstöðurnar jákvæðar fyrir sjúkrahúsið sem er mjög ánægjulegt. Um 85% þátttakenda bera mikið traust til stofnunarinnar. Tæplega 50% þátttakenda hafði nýtt sér þjónustu sjúkrahússins á sl. 12 mánuðum og voru 88,5% þeirra ánægð með þjónustu sjúkrahússins. Helsta ástæða ánægju tengdist góðri þjónustu, góðu starfsfólki og viðmóti. Helsti þáttur óánægju tengdist löngum biðtíma eftir þjónustu og að væntingar um þjónustu stóðust ekki.

Niðurstöðurnar verða nýttar til frekari umbóta skjólstæðingum stofnunarinnar í hag.


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112