Fjarheilbrigðisþjónusta og legudeildarbygging

Fjarheilbrigðisþjónusta og legudeildarbygging Eitt af því sem Covid faraldurinn hefur leitt af sér er stökk í nýtingu á fjarheilbrigðisþjónustu. Hér eru

Fjarheilbrigðisþjónusta og legudeildarbygging

Bjarni Jónasson, forstjóri
Bjarni Jónasson, forstjóri

Eitt af því sem Covid faraldurinn hefur leitt af sér er stökk í nýtingu á fjarheilbrigðisþjónustu. Hér eru ýmsar lausnir í notkun og aðrar í innleiðingu s.s. samskipta- og skipulagslausnin Memaxi sem verið er að innleiða á Kristnesspítala. Markmiðið með þeirri lausn er að bæta gæði þjónustunnar og miðlun upplýsinga ásamt því að gera sjúklingum kleift að taka virkan þátt og axla meiri ábyrgð á endurhæfingaferlinu. Á næstunni verður farið í að skoða frekar hvernig við getum nýtt fjarheilbrigðisþjónustu með árangursríkum hætti í okkar starfsemi.

Undirbúningur byggingar legudeildar hefur gengið hægar en væntingar okkar hafa staðið til. Nú er að fara í gang vinna með Framkvæmdasýslu ríkisins og heilbrigðisráðuneytinu þar sem frumathugunargögn vegna byggingarinnar verða uppfærð heildstætt. Þá ætti að koma meiri skriður á þetta mikilvæga verkefni.

Munum: ÖRYGGI – SAMVINNA - FRAMSÆKNI

Bestu kveðjur og góða helgi.

Bjarni Jónasson


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112