COVID-19 viðbúnaður

COVID-19 viðbúnaður Nú þéttist allur viðbúnaður vegna COVID-19 dag frá degi. Ég vil þakka öllum sem lagt hafa á sig milkla vinnu við undirbúning samhliða

COVID-19 viðbúnaður

Bjarni Jónasson, forstjóri
Bjarni Jónasson, forstjóri

Nú þéttist allur viðbúnaður vegna COVID-19 dag frá degi. Ég vil þakka öllum sem lagt hafa á sig milkla vinnu við undirbúning samhliða því að halda úti eðlilegri starfsemi. En mikilvægt er að leggja áherslu á að halda úti eðlilegri starfsemi og þjónustu við sjúklinga og vernda hana eins og kostur er jafnframt því að öryggi þeirra og starfsmanna sé tryggt. Þegar þetta er sett á blað eru ekki sýktir einstaklingar á upptökusvæði sjúkrahússins. Fjórir starfsmenn eru í sóttkví og eru þeir án einkenna.

Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru birtar á innri vef jafn óðum og þær eru teknar. Auk þess sem tölvupóstur er notaður til að koma skilaboðum áleiðis. Þá eru upplýsingar á Facebook síðu starfsmanna og Facebook síðu SAk. Hér að neðan eru þær aðgerðir sem komnar eru til framkvæmda eða eru í vinnslu.

  1. Lögð er áhersla á að allt sé til reiðu þegar að því kemur að sinna þarf sýktum einstaklingum.
  2. Sérstök viðbragðsstjórn hefur það hlutverk að stýra og samhæfa aðgerðir sjúkrahússins vegna COVID-19.
    1. Samráðs- og upplýsingafundir vaktaðir.
    2. Reglulegt samráð við umdæmislækni sóttvarna og HSN.
  3. Starfsemi er hagað með þeim hætti að draga úr hættu á að sjúklingar og starfsmenn smitist:
    1. Legudeildir sjúkrahússins eru lokaðar fyrir gestum allan sólarhringinn.
    2. Sjúklingar sem eiga bókaða tíma á dag- og göngudeildir eru beðnir að mæta án fylgdarmanns ef kostur er.
    3. Lögð er áhersla að vernda sérstaklega viðkvæma sjúklinga á dag- og göngudeildum með ákveðnum umgengisreglum um biðstofur og verklagi við innkallanir.
    4. Verið er að skoða hvort dagdeildasjúklingar geti um tíma fengið meðferð sem er fjarstýrt.
    5. Mikil áhersla á sýkingavarnir m.a. nýtt myndband um það hvernig farið er í hlífðarfatnað.
    6. Greining og sóttvarnaraðgerðir einstakra eininga er í sérstakri yfirferð.
    7. Upplýsingagjöf til starfsfólks um sérstaka síðu á innri vef m.a. með tengingar á aðrar upplýsingasíður heilbrigðisyfirvalda og almannavarna.
  4. Birgðir sem lúta að sóttvörnum og meðferð sýktra þ.m.t. lyf yfirfarnar og bætt í þar sem við á.
  5. Öllum námsferðum erlendis sem og stærri fundum starfsmanna hefur verið frestað.
  6. Öllum endurlífgunarnámskeiðum og hermikennslu verður frestað næstu 4 vikurnar.
  7. Byrjað er að kortleggja hvaða starfsmenn hafa fjartengingar og gætu unnið í fjarvinnu.
  8. Búið er að halda eina æfingu í móttöku og innlögn á sýktum einstaklingi. 

Það á örugglega eftir að bætast við þennan lista á næstu dögum og brýnt að allir séu meðvitaðir um hvar upplýsingar eru að finna bæði hér og einnig á vef Embættis landlæknis.

Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum varðandi öryggis- og gæðamál vegna gæðavottana er núna að skila sér í því að sjúkrahúsið er betur í stakk búið en það væri ella til að takast á við þessa áskorun.  

Ég vil hvetja alla til að kynna sér reglur um viðbragð á sinni starfseiningu og hafa í huga að í ástandi sem þessu þá erum við öll hvert og eitt almannavarnir. Með samstilltu átaki þá komumst við í gegnum þau verkefni sem framundan eru. 

 Munum: ÖRYGGI – SAMVINNA - FRAMSÆKNI

 Bestu kveðjur og góða helgi.

Bjarni Jónasson

 


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112