Færumst í rétta átt

Færumst í rétta átt Ljóst er að Covid-19 faraldur sem geisað hefur á Íslandi sl. vikur er í rénun og smit í samfélaginu aðeins brot af því sem var. Þá

Færumst í rétta átt

Bjarni Jónasson, forstjóri
Bjarni Jónasson, forstjóri

Ljóst er að Covid-19 faraldur sem geisað hefur á Íslandi sl. vikur er í rénun og smit í samfélaginu aðeins brot af því sem var. Þá hafa smit á Norður- og Austurlandi verið hlutfallslega fá. Þó má gera má ráð fyrir að upp geti komið einstaka smit eða bylgja faraldursins á næstu misserum.

Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var líkt og á LSH virkjuð viðbragðsáætlun sem gerði ráð fyrir mun stærri faraldri en raun varð á. Með því móti var hægt að sinna þeim verkefnum sem að SAk sneru.  Sett var upp sérstök legudeild og mönnuð heilbrigðisstarfsfólki ásamt því að sérstakar vaktlínur sérfræðinga og unglækna voru stofnaðar. Þá var einnig opnuð sérstök göngudeild fyrir Covid-19  smitaða.

Nú verður dregið úr þeim viðbúnaði sem verið hefur en þó með þeim hætti að sjúkrahúsið verði áfram í stakk búið að taka við og sinna Covid-19 sjúklingum á upptökusvæði sínu og eftir aðstæðum annars staðar. 

Frá og með 4. maí verður hafist handa við að koma dag- og göngudeildarstarfsemi og valkvæðum aðgerðum í eðlilegt horf. Það mun gerast í áföngum og í samræmi við gildandi reglur um smitgát.

Starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri leggur metnað sinn í að vera til staðar fyrir samfélagið nú sem endranær. 

Munum: ÖRYGGI – SAMVINNA - FRAMSÆKNI 

Bestu kveðjur

Bjarni Jónasson


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112