SAk fyrir samfélagið

SAk fyrir samfélagið SAk fyrir samfélagið heitir stefnan okkar og lýsir þeirri stöðu sem við viljum sjá 2021. Frá því stefnunni var hleypt af stokkunum á

SAk fyrir samfélagið

Bjarni Jónasson, forstjóri
Bjarni Jónasson, forstjóri

SAk fyrir samfélagið heitir stefnan okkar og lýsir þeirri stöðu sem við viljum sjá 2021. Frá því stefnunni var hleypt af stokkunum á ársfundi 2017 hefur margt áunnist og mörg þau verkefni sem sett hafa verið af stað hafa unnist til enda og önnur eru þess eðlis að líkja má við langhlaup. Sem dæmi má nefna þróun rafrænnar umsýslu lyfja og innleiðingu ALFA, lífsmarkamælingar á legudeildum sem fara beint í sjúkraskrá, þróun deildarvaka, þarfagreining vegna upptöku hjartaþræðinga á SAk hefur verið unnin og er góður grunnur til áframhaldandi vinnu. Ýmsar deildir hafa nýtt sér aðferðafræði straumlínustjórnunar til að einfalda klíníska vinnu og vinnulag. Þá má nefna gæðavottanir, nýja stefnu fyrir sjúkraflutningaskólann, nýja vísindastefnu, eflingu kennslu- og vísindastarfs, heilsustefnu og rafræna fræðslu. Áfram verður haldið á þessu ári og hefur stefnuskjalið okkar SAk fyrir samfélagið verið uppfært með lykilaðgerðum sem unnið verður að í ár. Þar eru tilteknar aðgerðir sem miða m.a. að þróun þjónustunnar, aðgerðir til að bæta gæði og öryggi og auka skilvirkni þjónustu. Einnig aðgerðir sem bæta kennslu nema, fræðslu starfsmanna og lúta að umhverfismálum. Hvet alla til að taka þátt í þeim verkefnum sem að þeim snúa.  

Munum: ÖRYGGI – SAMVINNA - FRAMSÆKNI 

Bestu kveðjur og góða helgi

Bjarni Jónasson


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112