Almennt - 17. janúar 2023 - Lestrar 28
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 80 milljónir króna sem gerir kleift að ljúka framkvæmdum við nýtt sjúkrahússapótek sjúkrahússins.
Framlagið kemur til viðbótar 120 milljónum króna sem ráðherra tryggði til verkefnisins á árinu 2022. Framkvæmdir hafa gengið vel og er þess vænst að hægt verði að ljúka þeim og hefja starfsemi í nýju sjúkrahússapóteki á þessu ári.