Tímabundin skerðing á þjónustu

Tímabundin skerðing á þjónustu Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi

Tímabundin skerðing á þjónustu

Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri og verður valkvæðum skurðaðgerðum fækkað tímabundið m.a. til þess að létta á álagi á gjörgæsludeild. Það er von okkar að þessi aðgerð hafi ekki langvarandi áhrif en búast má við því að biðlistar lengist lítillega og eru þeir skjólstæðingar sem þetta snertir beðnir um að sýna því skilning.  

Ástæðuna má m.a. rekja til óvenju mikilla veikinda starfsfólks síðustu vikur ásamt því að ekki hefur tekist að manna sem skyldi en þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir heilbrigðisstarfsfólki gengur okkur illa að manna bæði fastar stöður og eins stöður til afleysinga og ljóst að skortur á heilbrigðisstarfsfólki hefur víðtæk áhrif. Þess má einnig geta að mikið hefur verið um innlagnir sjúklinga vegna hinna ýmsu öndunarfærasjúkdóma sem hafa verið í samfélaginu.  

Veikindi starfsfólks og aukinn fjöldi innlagna hafa áhrif á starfsemina á öllum deildum sjúkrahússins en við viljum þakka starfsfólki okkar sem með þrautseigju og dugnaði hefur tekist að halda starfseminni gangandi og sinna þeim sjúklingum sem þurfa á okkar þjónustu að halda þrátt fyrir aukið álag. 

Jafnframt viljum við hvetja fólk til þess að koma og starfa með okkur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Með samstilltu átaki allra, heilbrigðiskerfisins sem og stofnana, þá tekst okkur að vinna með þessa stóru áskorun að manna nægilega vel í heilbrigðiskerfinu.  

Með bestu kveðjum, 

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri 


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112