: Upplýsingar frá Viðbragðsstjórn þann 25.2.2022 | Sjúkrahúsið á Akureyri  

Upplýsingar frá Viðbragðsstjórn þann 25.2.2022

Upplýsingar frá Viðbragðsstjórn þann 25.2.2022 Í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra eru í dag skráðir um 2000 í einangrun vegna Covid-19. Tólf

Upplýsingar frá Viðbragðsstjórn þann 25.2.2022

 

Í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra eru í dag skráðir um 2000 í einangrun vegna Covid-19.

Tólf eru inniliggjandi á sjúkrahúsinu með Covid-19, einn á gjörgæsludeild. Sjúkrahúsið er á hættustigi.  

 

Milli sextíu og sjötíu starfsmenn eru fjarverandi vegna Covid-19 og er það ein aðaláskorunin þessa dagana. Skoðað er dag frá degi hvernig tekist er á við mönnunina. Minnt er á bakvarðalistann og þeir sem hafa möguleika á að skrá sig á listann eru eindregið hvattir til þess. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á erlab@sak.is.

 

Frá miðnætti var öllum takmörkunum varðandi Covid-19 aflétt í samfélaginu og er staðan því nokkuð breytt. Áfram er þó mælst til þess að almennt séu viðhafðar persónubundnar sóttvarnir.

 

Í ljósi fjölda smita í samfélaginu og mönnunarvanda á sjúkrahúsinu er talið mikilvægt að halda áfram þeim smitvörnum sem í gangi eru á SAk. Engar breytingar eru því að svo stöddu t.d. varðandi takmarkanir á heimsóknum, grímunotkun, notkun á hlífðarfatnaði eða þjónustu í mötuneyti. Þetta verður skoðað nánar eftir helgina.

 

Fyrir starfsfólk SAk gildir því:

  1. Ef þú ert veik/veikur er rétt að vera heima.
  2. Ef þú ert með jákvætt hraðpróf og/eða lítil einkenni (t.d. hitalaus og væg kvefeinkenni) starfarðu í sóttkví B í fimm daga, sjá: Frá sóttvarnalækni (covid.is) Ekki þarf að taka frekari próf.
  3. Aðrir vinna samkvæmt sóttkví C að sinni, þ.e. áframhaldandi grímuskylda og einstaklingsbundnar sóttvarnir.
  4. Ekki þarf að tilkynna veikindi, niðurstöður úr hraðprófum eða að unnið sé í sóttkví B til Viðbragðsstjórnar.

 

Fyrir sjúklinga SAk gildir:

  1. Ef sjúklingur er með Covid-19 einkenni við komu á bráðamóttöku er tekið af honum hraðpróf.
  2. Sjúklingar sem leggjast inn og eru með einkenni eða grun um Covid-19 fara í PCR próf.
  3. Sjúklingar með staðfest Covid-19 smit fara í einangrun eins og hingað til.
  4. Þó smit sé á heimili sjúklings er ekki þörf á sóttkví innan sjúkrahússins.
  5. Ekki er þörf á PCR eða hraðprófi þó inniliggjandi sjúklingar flytjist milli stofnana.

 

Heilsugæslan á Akureyri hefur gefið út eftirfarandi varðandi breytingar á sýnatökum:

Frá og með 24. febrúar verður opið fyrir hraðpróf frá 9:00-12:30 í Strandgötu 31. Ekki verður lengur í boði fyrir almenning með einkenni COVID-19 að panta PCR sýnatöku heldur verða hraðgreiningarpróf einungis í boði. Eins og áður verður hægt að panta tíma í hraðgreiningarpróf í gegnum Heilsuveru eða hjá einkafyrirtækjum.

 

Stefnt er að því að loka göngudeild vegna Covid-19 í næstu viku. Þeim sem þurfa læknisþjónustu, aðra en bráðaþjónustu er vísað á Heilsuveru og heilsugæsluna í síma 1700.

 

Ágæta starfsfólk, það hillir núna undir að þessu Covid-19 tímabili sé að ljúka. Áður en það gerist má þó búast við enn frekari fjölgun smita og einhverjum veikindum því samfara. Framundan eru því áskoranir og það mun reyna á að takast á við þær. Með samvinnu munum við komast í gegnum þetta. Það styttist í betri tíð og vorið er framundan.

 

ATHUGIÐ að gæðaskjöl t. Covid-19 hafa ekki verið uppfærð m.v. þessar upplýsingar, unnið er að því.

 

Með bestu kveðjum og ósk um góða helgi, hvort sem er í vinnu eða í fríi.

Viðbragðsstjórn

 

 

 


Sjúkrahúsið á Akureyri

Eyrarlandsvegi
IS 600 Akureyri

Sími +354 4630100 / Fax +354 4624621

Kt. 580269-2229

sak@sak.is 

Skiptiborð

s.

463 0100

Vaktlæknir

s.

1700

Neyðarlínan

s.

112