Í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra eru í dag skráðir um 2000 í einangrun vegna Covid-19.
Tólf eru inniliggjandi á sjúkrahúsinu með Covid-19, einn á gjörgæsludeild. Sjúkrahúsið er á hættustigi.
Milli sextíu og sjötíu starfsmenn eru fjarverandi vegna Covid-19 og er það ein aðaláskorunin þessa dagana. Skoðað er dag frá degi hvernig tekist er á við mönnunina. Minnt er á bakvarðalistann og þeir sem hafa möguleika á að skrá sig á listann eru eindregið hvattir til þess. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á erlab@sak.is.
Frá miðnætti var öllum takmörkunum varðandi Covid-19 aflétt í samfélaginu og er staðan því nokkuð breytt. Áfram er þó mælst til þess að almennt séu viðhafðar persónubundnar sóttvarnir.
Í ljósi fjölda smita í samfélaginu og mönnunarvanda á sjúkrahúsinu er talið mikilvægt að halda áfram þeim smitvörnum sem í gangi eru á SAk. Engar breytingar eru því að svo stöddu t.d. varðandi takmarkanir á heimsóknum, grímunotkun, notkun á hlífðarfatnaði eða þjónustu í mötuneyti. Þetta verður skoðað nánar eftir helgina.
Fyrir starfsfólk SAk gildir því:
- Ef þú ert veik/veikur er rétt að vera heima.
- Ef þú ert með jákvætt hraðpróf og/eða lítil einkenni (t.d. hitalaus og væg kvefeinkenni) starfarðu í sóttkví B í fimm daga, sjá: Frá sóttvarnalækni (covid.is) Ekki þarf að taka frekari próf.
- Aðrir vinna samkvæmt sóttkví C að sinni, þ.e. áframhaldandi grímuskylda og einstaklingsbundnar sóttvarnir.
- Ekki þarf að tilkynna veikindi, niðurstöður úr hraðprófum eða að unnið sé í sóttkví B til Viðbragðsstjórnar.
Fyrir sjúklinga SAk gildir:
- Ef sjúklingur er með Covid-19 einkenni við komu á bráðamóttöku er tekið af honum hraðpróf.
- Sjúklingar sem leggjast inn og eru með einkenni eða grun um Covid-19 fara í PCR próf.
- Sjúklingar með staðfest Covid-19 smit fara í einangrun eins og hingað til.
- Þó smit sé á heimili sjúklings er ekki þörf á sóttkví innan sjúkrahússins.
- Ekki er þörf á PCR eða hraðprófi þó inniliggjandi sjúklingar flytjist milli stofnana.
Heilsugæslan á Akureyri hefur gefið út eftirfarandi varðandi breytingar á sýnatökum:
Frá og með 24. febrúar verður opið fyrir hraðpróf frá 9:00-12:30 í Strandgötu 31. Ekki verður lengur í boði fyrir almenning með einkenni COVID-19 að panta PCR sýnatöku heldur verða hraðgreiningarpróf einungis í boði. Eins og áður verður hægt að panta tíma í hraðgreiningarpróf í gegnum Heilsuveru eða hjá einkafyrirtækjum.
Stefnt er að því að loka göngudeild vegna Covid-19 í næstu viku. Þeim sem þurfa læknisþjónustu, aðra en bráðaþjónustu er vísað á Heilsuveru og heilsugæsluna í síma 1700.
Ágæta starfsfólk, það hillir núna undir að þessu Covid-19 tímabili sé að ljúka. Áður en það gerist má þó búast við enn frekari fjölgun smita og einhverjum veikindum því samfara. Framundan eru því áskoranir og það mun reyna á að takast á við þær. Með samvinnu munum við komast í gegnum þetta. Það styttist í betri tíð og vorið er framundan.
ATHUGIÐ að gæðaskjöl t. Covid-19 hafa ekki verið uppfærð m.v. þessar upplýsingar, unnið er að því.
Með bestu kveðjum og ósk um góða helgi, hvort sem er í vinnu eða í fríi.
Viðbragðsstjórn